Hljóð- og myndsafn Sameinuðu þjóðanna veitir almenningi aðgang að myndbandsupptökum, hljóðupptökum og ljósmyndum.
Sáttmálasafn Sameinuðu þjóðanna er gagnasafn þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um meira en 560 sáttmála.
Official Document System er gagnasafn sem inniheldur skjöl Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1993 og skönnuð skjöl frá tímabilinu 1946-1993.
United Nations iLibrary er gagnasafn á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þar er hægt að nálgast rafbækur, tímarit og gögn sem gefin eru út af Sameinuðu þjóðunum.
Skjalasafn Sameinuðu þjóðanna hefur skrásett og varðveitt skjöl Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1945. Skjalaskrá safnsins er aðgengileg á netinu og safnið reynir eftir bestu getu að gera skjöl aðgengileg rafrænt.