Notið lbs.leitir.is til að finna bækur á safninu. Rafbækur sem eru í áskrift HÍ og safnsins eru aðeins aðgengilegar á háskólanetinu. Sum námskeið eiga fráteknar ákveðnar bækur. Þær bækur eru á námsbókasafninu á 3. hæð.
Efni sem er ekki til á safninu er hægt að panta í millisafnaláni á lbs.leitir.is. Nánari upplýsingar:
Hægt er að senda inn tillögur um bókakaup með því að fylla út eyðublað á vef safnsins.
Athugið að hér eru EINUNGIS SÝNISHORN af bókum sem tengjast námsgreininni.
Nemendur eru hvattir til að kynna sér námsbókasafnið og athuga hvort kennarar hafi óskað eftir að bækur/efni sé frátekið fyrir tiltekin námskeið.
Safnkosturinn er flokkaður eftir Dewey flokkunarkerfinu og raðað í hillur samkvæmt því.
| 540 | Efnafræði og skyldar greinar |
| 541 | Eðlisefnafræði og kennileg efnafræði |
| 542 | Efnarannsóknarstofur, tæki, búnaður |
| 543 | Efnagreining (e. analytical chemistry) |
| 544 | Þáttgreining (e. qualitative analysis) |
| 545 | Magngreining (e. quantitative analysis) |
| 546 | Ólífræn efnafræði |
| 547 | Lífræn efnafræði |
| 548 | Kristallafræði |