Notið lbs.leitir.is til að finna bækur á safninu. Rafbækur sem eru í áskrift HÍ og safnsins eru aðeins aðgengilegar á háskólanetinu. Sum námskeið eiga fráteknar ákveðnar bækur. Þær bækur eru á námsbókasafninu á 3. hæð.
Efni sem er ekki til á safninu er hægt að panta í millisafnaláni á lbs.leitir.is. Nánari upplýsingar:
Hægt er að senda inn tillögur um bókakaup með því að fylla út eyðublað á vef safnsins.
Athugið að hér eru EINUNGIS SÝNISHORN af bókum sem tengjast námsgreininni.
Almennur safnkostur í ítölsku er á 4. hæð, handbækur á 2. hæð. Efnið er flokkað eftir Dewey flokkunarkerfinu og raðað í hillur samkvæmt því. Helstu flokkar:
450 | Ítalska, orðabækur |
803 | Bókmenntir, uppsláttarrit |
850.3 | Ítalskar bókmenntir, uppsláttarrit |
850.9 | Ítölsk bókmenntasaga |
851 | Ítölsk ljóð |
852 | Ítölsk leikrit |
853 | Ítalskar skáldsögur og smásögur |
853.09 | Umfjöllun um ítalskar bókmenntir |
928 | Æviskrár rithöfunda |
Nemendur eru hvattir til að kynna sér námsbókasafnið og athuga hvort kennarar hafi óskað eftir að bækur/efni sé frátekið fyrir tiltekin námskeið.