Notið lbs.leitir.is til að finna bækur á safninu. Rafbækur sem eru í áskrift HÍ og safnsins eru aðeins aðgengilegar á háskólanetinu. Sum námskeið eiga fráteknar ákveðnar bækur. Þær bækur eru á námsbókasafninu á 3. hæð.
Efni sem er ekki til á safninu er hægt að panta í millisafnaláni á lbs.leitir.is. Nánari upplýsingar:
Hægt er að senda inn tillögur um bókakaup með því að fylla út eyðublað á vef safnsins.
Athugið að hér eru EINUNGIS SÝNISHORN af bókum sem tengjast námsgreininni.
Almennur safnkostur í spænsku er á 4. hæð, handbækur á 2. hæð. Efnið er flokkað eftir Dewey flokkunarkerfinu og raðað í hillur samkvæmt því. Helstu flokkar:
| 460 | Spænskar orðabækur |
| 803 | Uppsláttarrit um bókmenntir |
| 808.8 | Stílfræði o.fl. |
| 860.3 | Uppsláttarrit um spænskar bókmenntir |
| 860.9 | Spænsk bókmenntasaga |
| 861 | Spænsk ljóð |
| 862 | Spænsk leikrit |
| 863 | Spænskar skáldsögur og smásögur |
| 863.9 | Umfjöllun um spænskar bókmenntir |
| 928 | Æviskrár rithöfunda |
Nemendur eru hvattir til að kynna sér námsbókasafnið og athuga hvort kennarar hafi óskað eftir að bækur/efni sé frátekið fyrir tiltekin námskeið.