Notið lbs.leitir.is til að finna bækur á safninu. Rafbækur sem eru í áskrift HÍ og safnsins eru aðeins aðgengilegar á háskólanetinu. Sum námskeið eiga fráteknar ákveðnar bækur. Þær bækur eru á námsbókasafninu á 3. hæð.
Efni sem er ekki til á safninu er hægt að panta í millisafnaláni á lbs.leitir.is. Nánari upplýsingar:
Hægt er að senda inn tillögur um bókakaup með því að fylla út eyðublað á vef safnsins.
Athugið að hér eru EINUNGIS SÝNISHORN af bókum sem tengjast námsgreininni.
Almennur safnkostur í þýsku er á 4. hæð, handbækur á 2. hæð. Efnið er flokkað eftir Dewey flokkunarkerfinu og raðað í hillur samkvæmt því. Helstu flokkar:
430 | Orðabækur, þýska |
803 | Uppsláttarrit um bókmenntir |
830 | Þýskar bókmenntir |
830.3 | Uppsláttarrit um þýskar bókmenntir |
830.9 | Þýsk bókmenntasaga |
831 | Þýsk ljóð |
832 | Þýsk leikrit |
833 | Þýskar skáldsögur og smásögur |
833.09 | Umfjöllun um þýskar bókmenntir |
838.1 | Mið- og fornháþýskar bókmenntir |
928 | Æviskrár rithöfunda |
Nemendur eru hvattir til að kynna sér námsbókasafnið og athuga hvort kennarar hafi óskað eftir að bækur/efni sé frátekið fyrir tiltekin námskeið.