Skip to Main Content
site header image

Lögfræði: Alþingistíðindi

Alþingistíðindi

Alþingistíðindi eru útgáfa á efni þingfunda og þingskjölum á Alþingi Íslendinga. Alþingi kom saman annað hvert ár fram til 1921 og aukaþing voru haldin eftir þörfum.

 Á árunum 1845 -1873 kom út ritið Tíðindi frá Alþingi Íslendinga 
og Tíðindi frá þjóðfundi Íslendinga kom út árið 1851. Útgáfa Alþingistíðinda hófst árið 1875.

Frá og með árinu 1973 hafa Alþingistíðindi verið gefin út í tveimur deildum: 

A-deild: þingskjöl    

B-deild: umræður  

Greinargerðir eða athugasemdir við frumvörp og þingsályktunartillögur eru alltaf í fyrsta þingskjali hvers máls, þ.e. frumvarpinu sjálfu eða þingsályktunartillögunni.    

Tíðindi frá Alþingi Íslendinga

   1845-1861:   Efni óskipt

   1863-1873:   Í tveimur hlutum
                           Umræður og þingskjöl yfirleitt aðskilin

Alþingistíðindi

   1875-1881:   Í tveimur hlutum
                           Umræður og þingskjöl yfirleitt aðskilin

   1883-1903:  Í þremur hlutum
                         A: umræður í efri deild og sameinuðu þingi
                         B: umræður í neðri deild
                         C: þingskjöl

   1905-1917:    A: þingskjöl
                         B: umræður

   1917-1920:    A: þingskjöl
                         B: umræður um samþykkt mál og afgreidd
                         C: umræður um fallin mál, óútrædd, afturkölluð
                                 og um fyrirspurnir

   1921-1972:   A: þingskjöl
                        B: umræður um samþykkt frumvörp
                        C: umræður um fallin frumvörp
                        D: umræður um þingályktunartillögur og fyrirspurnir

   1973-2009:   A: þingskjöl
                        B: umræður

                       Alþingistíðindi eru til í prentaðri útgáfu til 136. löggjafarþings 2008-2009
                       Prentun Alþingistíðinda 137., 138. og 139. löggjafarþings hefur verið
                       frestað um óákveðinn tíma.

   2011-2012   prentútgáfu frestað / hætt             

   1989-          Rafræn útgáfa 

Öll prentútgáfa Alþingistíðinda er skönnuð og aðgengileg á Alþingistíðindi.is

Fram til ársins 1986 er aðalefnisyfirlit Alþingistíðinda fremst í 1. bindi B-deildar hvers árs. Þar er vísað beint

  • í númer þingskjals sem er í A-deild 
  • og til dálkatals umræðna sem eru í B-deild.   

Árið 1986 voru gerðar umtalsverðar breytingar á aðalefnisyfirlitinu og það gefið út sem sérstök skrá.

Í fyrstu var það bundið  fremst í 1. bindi bæði A- og B–deildar en sem sérstakt bindi frá 1992.  

 

 

Leit í lagasafni á vef Alþingis

Eftirtaldir leitarmöguleikar eru einnig fyrir hendi á vef Alþingis:

  • Einföld orðaleit  í textum þingskjala frá og með 1931
                
    Veljið löggjafarþing eða tímabil
     
  • Leit í málaskrám eftir málsheitum og málsnúmerum frá og með 1907 
                 Ræðutexti er aðgengilegur aftur til 1937 
                 Veljið löggjafarþing eða tímabil.
     
  • Ítarleit í þingskjölum sem leitar í texta þingskjala frá og með 1931
    • og í málum og málsheitum frá og með 1907
      Veljið löggjafarþing eða tímabil.
       
  • Orðaleit í umsögnum leit að erindum og umsögum um þingmál
                frá og með 2001. Eldri erindi eru sett á vefinn skv. beiðni 
                Veljið löggjafarþing eða tímabil