Vefútgáfa Alþingistíðinda hófst 1989 og er nú undir
Þingufndir og mál á vef Alþingis
Þingmál
Fyrir hvert þingmál er síða með tenglum í allar ræður og skjöl sem tengjast málinu. Hægt er að nálgast málin úr þingmálalistum og fá yfirlit yfir hvert þing fyrir sig allt aftur til ársins 1907 – veldu löggjafarþing úr felliglugga.
Þingskjöl
Hægt er að leita í þingskjölum með:
Ræður og þingskjöl þingmanna
Fyrir hvern þingmann er síða, yfirliti yfir þingmenn, með tenglum í þingstörf, ræður og skjöl sem þingmaðurinn hefur flutt.
Þegar vísað er í þingræðu á vef Alþingis þarf að geta þess hvenær upplýsingarnar voru sóttar á vefinn því hugsanlegt er að einhverjar breytingar verði gerðar á textanum.
Tilvísun til vefútgáfu frumvarps um jarðhitaréttindi á 122. löggjafarþingi yrði þannig:
Frumvarp til laga um jarðhitaréttindi, þskj. 56, 56. mál.
Vefútgáfa Alþingistíðinda, slóð:
https://www.althingi.is/altext/122/s/0056.html.
[Sótt á vefinn 24.11.1998].
Bráðabirgðaútgáfa þingræðna er send út á vefinn jafnskjótt og ræður hafa verið ritaðar. Eins og þar kemur fram er óheimilt að vísa til bráðabirgðaútgáfu.
Tilvísun í vefútgáfu af ræðu Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi um málefni LÍN yrði þannig:
Björn Bjarnason (1997). Utandagskrárumræður um málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna, 9. október. Vefútgáfa Alþingistíðinda, slóð:
https://www.althingi.is/altext/122/10/r09103704.sgml.
[Sótt á vefinn 24.11.1998].
Sótt á vef Alþingis 31.03 2015
Orðskýringar – við hugtök á vef Alþingis