Athugið að doktorsritgerðir eru skráðar í varðveislusafnið Opin vísindi, sjá leiðbeiningar hér
Nemandi sem hyggst útskrifast frá Háskóla Íslands skal skila rafrænu eintaki af lokaverkefni sínu í Skemmuna sem er stafrænt varðveislusafn lokaverkefna nemenda við alla háskóla á Íslandi.
Ritgerð skal skilað á pdf-formi eigi síðar en á lokaskiladagi viðkomandi deildar ásamt rafrænni yfirlýsingu um meðferð verkefnisins.
Ef yfirlýsingin er opnuð í Acrobat Reader er hægt að fylla hana út rafrænt með því að velja "Tools" og "Fill & Sign". Prentið hana svo út, undirritið og skilið rafrænt í Skemmuna sem sérskjali með ritgerðinni í skrefi 2.
Annars er yfirlýsingin prentuð út, fyllt út, undirrituð og skilað í Skemmuna sem sérskjali með ritgerðinni í skrefi 2. Þar er hægt að hlaða upp mörgum skrám en aðeins einni í einu.
Byrjið á að setja ritgerðina og yfirlýsinguna í pdf-form.
Á upphafssíðu Skemmunnar má sjá eftirfarandi:
Með því að smella á Skil í Skemmuna smelltu hér opnast:
Smelltu á Háskóli Íslands.
Notendur skrá sig inn á Menntaskýinu. Ef skilað er í Skemmu án þess að vera skráð (-ur) inn í Outlook/365 hjá skólanum í vafranum þarf að nota aðgangsorð - þau sömu og notuð eru til að komast á Uglu/innri vefinn. Skráðu þig þá inn með notendanafni og lykilorði
Veldu safn: Þar er hægt að velja viðeigandi svið, s.s. Félagsvísindasvið og Menntavísindasvið og tegund ritgerðar.
Að þessu loknu skal smella á Hefja skil. Þá kemur SKREF 1