Skip to Main Content
site header image

Skemman (varðveislusafn), leiðbeiningar um verkefnaskil: Skil – 2. skref (m.a. myndefni)

Skemman er rafrænt varðveislusafn fyrir lokaritgerðir íslensku háskólanna.

Athugið að doktorsritgerðir eru skráðar í varðveislusafnið Opin vísindi, sjá leiðbeiningar hér

Háskóli Íslands – Skila lokaverkefni – 2. skref

Í þessu skrefi er ritgerðinni og yfirlýsingunni hlaðið upp. Einnig öðrum skrám, ef það á við.

Hér skal smella á Choose File og velja viðeigandi skrá. Ritgerðir skulu vera á .pdf formi. Þegar því er lokið skal smella á "Hlaða upp".

 

 

Hér er hægt að hlaða inn yfirlýsingunni um meðferð verkefnisins


Hlaða upp myndefni
:

Myndefni skal vera á "mp4" skráarsniði. Myndskeið (vídeó) skulu vera á MPEG-4 AVC sniði (H.264) og hljóð á AAC sniði.

Athugið að erfitt getur verið að hlaða stærri skrám upp í Skemmuna. Æskilegt er að halda skráarstærð undir 1 GB. Hljóðefni skal vera á "mp3“ sniði (MPEG-2 Audio Layer III).

 

Þegar búið er að velja lýsingu, aðgang o.þ.h. má halda áfram og þá er hægt að yfirfara upplýsingarnar.

 

Að lokum þarf að staðfesta skil –  SKREF 3