Skip to Main Content
site header image

Dewey flokkunarkerfið: Dewey flokkunarkerfið

Dewey flokkunarkerfið

Safnkosturinn er flokkaður eftir Dewey flokkunarkerfinu. Kerfið er byggt upp á tíu efnisflokkum og undirflokkum því raðað í hillur samkvæmt því.

Í þessum leiðarvísi er að finna upplýsingar um aðalflokkana tíu, helstu þekkingarsviðin og leiðarvísa sem tengjast þeim. Dewey númerin sem tengjast landafræði og sögu Íslands ásamt nánari flokkun á efni innan lögfræðinnar.

Dæmi af lbs.leitir.is

Hér er dæmi um aðalflokkinn 300 fyrir félagsvísindi en þar er að finna efni í eftirfarandi undirflokkum: 302 fyrir félagsleg samskipti, 302.2 fyrir boðskipti og svo 302.23 fyrir fjölmiðla. Undirflokkarnir eru nánari flokkun á viðkomandi efnisflokki eftir því hversu sérhæft efnið er og bætast þá við fleiri aukatölustafir. 

Bókin Mass communication theories : explaining origins, process, and effects er þá staðsett á 4. hæð í Þjóðarbókhlöðu undir 302.23 DeF

Aðalefnisflokkarnir tíu

Bækur í flokkunum 000-199 eru staðsettar á 3. hæð í Þjóðarbókhlöðu og bækur í 200-999 á 4. hæð.

000 Almennt efni, tölvunarfræði
100 Heimspeki, sálfræði
200 Trúarbrögð
300 Félagsvísindi
400 Tungumál
500 Raunvísindi
600 Tækni, þ.m.t. læknisfræði
700 Listir, skemmtanir, íþróttir
800 Bókmenntir
900 Sagnfræði, landafræði, ævisögu