DOI stendur fyrir Digital Object Identifier. Það er notað til að auðkenna rannsóknargögn, s.s. tímaritsgreinar og önnur gögn sem gefin eru út á rafrænu formi á netinu, t.d. tímaritsgreinar, skýrslur, ráðstefnurit og gagnasett. Þessu mætti líkja við örmerkingar á köttum... og með því að auðkenna tímaritsgrein með DOI númeri er búið að tryggja varanlega slóð á netinu, jafnvel þó að upprunalega vefslóðin á greinina breytist. Þess má geta að Skemman, rafrænt varðveislusafn háskólanna á Íslandi, notar svipað kerfi svokallað „handle“ (handfang) til að auðkenna námsritgerðir og það virkar á sama hátt.
DOI auðkennið er staðlað af Alþjóðlegu staðlastofnuninni – ISO (International Organization for Standardization).
Útgefendur fræðitímarita á Íslandi geta sótt um DOI númer fyrir greinar í tímaritum sínum t.d. hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni (Lbs-Hbs). Úthlutun DOI númera er útgefendum að kostnaðarlausu.
DOI númer Lbs-Hbs hefjast alltaf á 10.33112. Á eftir því kemur skástrik “ / “ og svo titill/skammstöfun tímarits, tillaga að skammstöfun tímarits kemur frá tímaritinu. Vefslóð að DOI númeri byrjar oftast á https://doi.org/... og svo fylgja tölu- og bókstafirnir á eftir.
Þegar tímaritsgrein hefur fengið sitt DOI númer, sést það oftast á fyrstu síðu, efst eða neðst.
Dæmi: DOI með vefslóð
Dæmi: DOI án vefslóðar