Hvað er námsbókasafn?
Námsbókasafn er safn bóka, mynddiska og annars efnis sem kennarar við Háskóla Íslands hafa óskað eftir að sé aðgengilegt nemendum í tilteknum námskeiðum. Námsbókasafnið er fremst til hægri þegar komið er inn á 3. hæð Þjóðarbókhlöðunnar.
Hvernig er námsbókasafnið skipulagt?
Aðgangur að námsbókasafni er opinn. Námsbókasafninu er raðað niður eftir fræðasviðum Háskóla Íslands og síðan eftir deildum innan fræðasviðs. Námskeiðið sem þú leitar að finnur þú í merktri hillu í þinni deild. Mynddiskar eru ávallt geymdir bak við afgreiðsluborðið á 4. hæð, því þarf að spyrja sérstaklega eftir þeim í afgreiðslunni.
Hvernig nota ég námsbókasafnið?
Efni á námsbókasafni er eingöngu ætlað þeim sem stunda nám við Háskóla Íslands. Bækurnar eru aðgengilegar í hillum þannig að nemendur finna sjálfir þær námsbækur sem þeir þurfa að nota.
Hvernig tryggi ég góða samnýtingu?
Mjög áríðandi er að allt efni sem er til notkunar á staðnum rati aftur á sinn stað svo aðrir nemendur geti nýtt sér það. Fleiri eintök eru til af sumum bókum og eru þær þá staðsettar annars staðar í safninu og til almennra útlána.
Hvar skila ég bókum úr námsbókasafni?
Ef bókin er merkt notkun á staðnum er henni skilað á skilavagna sem standa við afgreiðsluborðið og hillur námsbókasafnsins á 3. hæð. Ef bókin er lánuð út er henni skilað í afgreiðsluna á 2. hæð eins og öðru efni.
Er hægt að panta bók eða framlengja lánstíma?
Ekki er hægt að taka frá efni í námsbókasafni. Aðeins er hægt að framlengja lánstíma ef skriflegt leyfi frá kennara liggur fyrir. Beiðni frá kennara þarf að berast námsbókasafni í tölvupósti: namsbokasafn@landsbokasafn.is
Hægt er að sjá hvort bók er skráð á námsbókasafn á lbs.leitir.is. Þar er einnig hægt að sjá hversu langur lánstíminn er og í hvaða námskeið bókin er skráð.
Hér að neðan má sjá hvernig upplýsingarnar um námsbókina eru skráðar inn í lbs.leitir.is.
Rauður miði: Notkun á staðnum
Bleikur miði: Dægurlán
Blár miði: 3ja daga lán
Gulur miði: 7 daga lán
Grænn miði: 2ja vikna lán
Vinsamlegast takið tillit til samnemanda
Afar áríðandi er að gögnum sé skilað á réttum tíma
Dagsektir eru 650 kr. á dag fyrir hvert eintak