Skip to Main Content
site header image

Námsbókasafn: Eru námsbækurnar mínar á námsbókasafninu?

Námsbókasafn er safn efnis sem kennarar við Háskóla Íslands hafa óskað eftir að sé aðgengilegt fyrir nemendur

1. skref

Við byrjum á því að skrá okkur inn á lbs.leitir.is. Næst smellum við á stækkunarglerið.

2. skref

Síðan veljum við Námsbókasafn.

3. skref

Í þessu dæmi ætlum við að leita að bókum í áfanganum FOM102F Eigindlegar rannsóknaraðferðir I. Við skrifum stuttnúmer námskeiðsins FOM102F í leitargluggann og smellum á stækkunarglerið.

4. skref

Við fáum 14 niðurstöður. Við smellum á bókina Qualitative research methods.

5. skref - Prentuð bók

Við sjáum að bókin er til í tveimur eintökum. Annað eintakið er til láns í 14 daga og hitt einungis fyrir innanhússláni. Hillustaðsetningin er 300.72 Hen og bæði eintökin eru í námsbókasafni á 4. hæð Þjóðarbókhlöðu.

Athugið ef við sleppum því skrá okkur inn í upphafi leitar, þá sjást ekki upplýsingarnar um lánstímann. 

5. skref - Rafbók

Hér sjáum við dæmi um aðra bók sem er aðgengileg sem rafbók. Rafbækur geta verið aðgengilegar í gegnum mismunandi rafbókasöfn en í þessu tilviki er hún aðgengileg hjá VLeBook. Til að opna rafbókina, smellum við á það.

Athugið að ef bókin opnast ekki, gæti það verið út af því að rafbókin er aðgengileg í gegnum séráskriftir HÍ og bókasafnsins. Í þeim tilvikum verður notandinn að vera tengdur háskólanetinu til að fá aðgang að bókinni.