Málverk Haustkvöld/Engjafólk frá 1958 eftir Gunnlaug Scheving (1904-1972).
Málverk af ljóðskáldinu Steini Steinarr (1908-1958) eftir Nínu Tryggvadóttur (1913-1968) frá 1939.
Teikning frá 1835 af Steingrími Jónssyni (1769-1845) eftir franskan teiknara Emile Lassalle (1813-1871).
Steingrímur var biskup frá 1824-1845..
Brjóstmynd af Jóhannesi úr Kötlum eftir Finn Jónsson (1892-1993).
Brjóstmynd af Finni Jónssyni (1858-1934) eftir Ríkarð Jónsson (1888-1977).
Finnur Jónsson var málfræðingur og prófessor í norrænni textafræði við Kaupmannahafnarháskóla sem lagði mikið af mörkum til rannsóknar á fornorrænum bókmenntum.
Brjóstmynd frá 1888 eftir Joseph Echteler (1853-1908), þýskan högglistamann af Konrad v. Maurer (1823-1902).
Konrad v. Maurer var þýskur sagnfræðingur sem hafði mikinn áhuga á íslenskri sögu og menningu og þekktur fyrir þann stuðning sem hann sýndi Íslendingum í sjálfstæðisbaráttunni.
Bjóstmynd frá 1871 af Jóni Sigurðssyni (1811-1879) eftir Brynjulf Larsen Bergslien (1830-1898), norskan högglistamann.
Jón Sigurðsson var helsti leiðtogi Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld.
Brjóstmynd af Guðmundi Finnbogasyni (1873-1944) frá 1943 eftir Einar Jónsson (1874-1954).
Guðmundur var sálfræðingur, kennari og rithöfundur. Hann var landsbókavörður frá 1924-1943.