Athugið að doktorsritgerðir eru skráðar í varðveislusafnið Opin vísindi, sjá leiðbeiningar hér
Hvað er Skemman.is og hvers vegna?
Skemman er rafrænt varðveislusafn sem heldur utan um lokaverkefni nemenda og rannsóknarrit kennara og fræðimanna
Samkvæmt breytingu á 54. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 sem samþykkt var í háskólaráði 3. desember 2015 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 22. desember skulu stúdentar skila lokaritgerðum á bakkalár- og meistarastigi rafrænt í gagnakerfið Skemman.is sem vistað er hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni á formi sem safnið ákveður.
Doktorsritgerðir falla ekki undir þetta ákvæði.
Frá 2015 eru doktorsritgerðir skrifaðar við íslenska háskóla vistaðar í varðveislusafninu Opin vísindi, sjá leiðbeiningar hér.
Þrjár deildir hafa samþykkt reglur um aðgang að lokaritgerðum í Skemmunni. Það eru:
Almennt skal aðgangur að lokaritgerðum vera opinn, en ef talið er mikilvægt að loka aðgangi tímabundið þá þarf að færa rök fyrir því og deildarforseti og leiðbeinandi þurfa að vera því meðmæltir
Samkvæmt reglum viðskipta- og hagfræðideildar þarf að sækja um undanþágu ef óskað er eftir lokuðum aðgangi að meistararitgerð. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu deildarinnar.
Nemendur annarra deilda geta læst aðganginum að eigin ritgerð í 120 ár. En mælt er með því að lokun sé ekki lengri en nauðsyn krefur.