Nokkrar leiðir eru til að tengjast háskólanetinu á háskólasvæðinu og utan þess. Hægt er að leita aðstoðar hjá Menntasmiðju á stjórnsýsluganginum í Stakkahlíð og Tölvuþjónustu UTS á Háskólatorgi.
Vegna flutninga Menntavísindasviðs í Sögu verður barnabókasafn Menntavísindasviðs ekki aðgengilegt veturinn 2024-2025. Stærstur hluti safnkosts bókasafns Menntavísindasviðs hefur verið sameinaður safnkosti Landsbóksasafns Íslands - Háskólabókasafns og er nú aðgengilegur þar. Það á þó ekki við um barnabókasafnið sem sett hefur verið í geymslu fram að flutningum.
Ef á þarf að halda má nálgast allt íslenskt efni og þar á meðal barnabækur, á Íslandssafni í Þjóðarbókhlöðu en það efni er ekki tl útláns.
Búast má við að safn barnabóka ásamt námsgagnasafni verði sett upp í Sögu vorið 2025. Í sama rými verður vinnuaðstaða fyrir nemendur.
Barnabókasafn Menntavísindasviðs á sér langa sögu og þar hefur verið að finna gott úrval barna- og unglingabókabóka. Mest áhersla er lögð á íslenskar bækur en einnig vandaðar þýddar bækur og fræðibækur um barnabókmenntir. Barnabókmenntir eru mikilvægur efniviður í námi kennara á öllum skólastigum og gegna lykilhlutverki í lestrarnámi leik- og grunnskólabarna.
Gunnhildur K. Björnsdóttir
Fagstjóri rannsóknarþjónustu
gunnhildur.k.bjornsdottir@landsbokasafn.is
Sími: 525 5725