opinnadgangur.is / openaccess.is er upplýsinga- og fræðsluvefur Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns um opinn aðgang að vísindaefni og rannsóknaniðurstöðum sem styrktar eru af opinberu fé.
Efni hans og leiðbeiningar eru einkum ætlaðar rannsakendum, útgefendum, nemendum, upplýsingafræðingum og öðrum sem vilja kynna sér opinn aðgang og auka þátt hans í útgáfu vísindaefnis.
Það er hægt að vista efni í opnum aðgangi í
Óritrýnt handrit (pre-print/author´s manuscript). Grein sem send hefur verið til útgáfu í tímariti, er lokauppkast sem höfundur skilar til útgefanda og á eftir að ritrýna
Lokaútgáfa höfundar (post-print/accepted manuscript). Ritrýnd grein sem samþykkt hefur verið til birtingar í vísindatímariti, er efnisleg lokaútgáfa greinar og er í framsetningu höfundar.
Útgefin grein (publisher´s version). Útgefin grein eins og hún birtist í tímariti, í uppsetningu og umbroti útgefanda.
Mismunandi er eftir tímaritum hverja af þessum útgáfum greinar má vista í varðveislusafni. Í gagnasafninu SHERPA/RoMEO er hægt að nálgast upplýsingar um útgáfustefnur einstakra útgefenda og hverja ofantalinna útgáfa greinar má vista í varðveislusafni. Leitað er eftir titli tímarits eða ISSN númeri.
Þjónustugjöld vegna birtinga (Article Processing Charge eða APC) eru gjöld sem útgefendur rukka stundum höfunda fyrir birtingu greina í opnum aðgangi. Þessi gjöld eru mishá eftir útgefendum.
Sjá yfirlit yfir þjónustugjöld og birtingatafir helstu útgefenda.