Skip to Main Content
site header image

Heimildaskráning - EndNote: Word og EndNote

Leiðbeiningar fyrir EndNote heimildaskráningaforritið

Word

EndNote býr til tengingu við Word og það er því hægt að færa heimildir beint inn í texta og búa til heimildaskrá samhliða skrifum. Athugið að ef það þarf að laga heimild, til dæmis að laga höfund eða bæta við tengli, þá þarf að gera það í EndNote því heimildirnar í Word skjalinu eru ekki hreinn texti heldur tenging við forritið. 

Heimildirnar eru færðar inn jafnóðum með því að fara í EndNote flipann og Insert Citation til vinstri:

Þá opnast gluggi þar sem hægt er að leita að þeim heimildum sem eiga að fara í textann. Hægt er að smella til hliðar við Insert og velja hvernig heimildin á að birtast, til dæmis í byrjun setningar:

  • Ágústa Pálsdóttir (2008)

eða í lok hennar:

  • (Ágústa Pálsdóttir, 2008):

Og þá er tilvísunin komin inn í meginmálið og heimildin komin í heimildaskrá á réttan stað.​

Blaðsíðutal í tilvísun

Til að bæta blaðsíðutali við tilvísun má t.d. fara í Edit & Manage Citations

og setja blaðsíðutalið með textanum , bls. xx í Suffix til að EndNote „skilji“ að þetta er texti sem á að birtast með tilvísuninni.

Þá kemur blaðsíðutalið með tilvísuninni: (Ivey og Crum, 2018, bls. 399).