Skip to Main Content
site header image

Leitir.is: Flettileit

1. skref

Í þessu dæmi ætlum við að nota flettileit til þess að finna 1. bindið í ritröðinni Kirkjur Íslands. Við byrjum á því að smella á flettileit á forsíðunni.

2. skref

Næst smellum við á veldu leitarsvið.

3. skref

Síðan smellum við á ritröð.

4. skref

Við sláum við inn leitarorðið Kirkjur Íslands í leitargluggann og smellum á stækkunarglerið.

5. skref

Við sjáum að ritröðin birtist í niðurstöðum. Við smellum á ritröðina til þess að sjá hvar hún er aðgengileg.

6. skref

Í ritröðinni hafa komið út 31 bindi. Við erum að leita að 1. bindi þannig að við við viljum finna elsta bindið í ritröðinni. Við smellum á titill undir þrengja leitarniðurstöður vinstra megin á síðunni.

7. skref

Næst veljum við elsta fyrst.

8. skref

1. bindið birtist efst í leitarniðurstöðum. Við smellum á bókina til þess að sjá hvar hún er aðgengileg.

9. skref

Bækur á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni eru merktar Lbs-Hbs. Ef við fáum fleiri en eina niðurstöðu er best að byrja á því að velja Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða. Við getum því smellt á Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða til þess að fá ítarlegri upplýsingar um bókina.

10. skref

Þegar við erum búin að smella á Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða birtast ítarlegri upplýsingar um bókina. Það er til eitt eintak af bókinni á 4. hæð. Hillustaðsetningin er 726.509491 Kir og eintakið er á sínum stað. Í þessu tilviki getur lánþegi komið á safnið og fundið eintakið í hillu.