Ekki þarf að skrá sig inn til að leita á lbs.leitir.is.
Innskráning er nauðsynleg til þess að skoða útlán, endurnýja útlán og taka frá efni.
Hér eru leiðbeiningar um það hvernig á að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum / Íslykli.
Fyrst smellum við á Innskráning á forsíðunni.
Síðan veljum við Rafræn skilríki / Íslykill.
Vinstra megin er hægt að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Það gerir þú með því að slá inn símanúmer og smella á Innskrá eða með því að auðkenna þig með einkaskilríki og smella á Staðfesta.
Hægra megin er hægt að skrá sig inn með Íslykli. Það gerir þú með því að slá inn kennitölu og Íslykil og smella síðan á Staðfesta.
Þegar innskráningu er lokið birtist nafnið þitt efst í hægra horninu.