Skip to Main Content
site header image

Leitir.is: Ítarleg leit

Ítarleg leit

Ítarleg leit býður upp á fleiri valmöguleika en einföld leit. Hér fyrir neðan er dæmi um það hvernig hægt er að nota ítarlega leit til þess að finna efni.

1. skref

Fyrst smellum við á Ítarleg leit á forsíðunni.

2. skref

Ítarleg leit býður upp á marga valkosti. Í þessu dæmi ætlum við að reyna að finna japanska þýðingu á Hávamálum. Við byrjum á því að velja Titill í felliglugganum efst til vinstri. Næst skrifum við Hávamál í leitargluggann og síðan veljum við Bækur í Lýsing og Japanska í Tungumál. Þegar þessu er lokið smellum við á Leita.

3. skref

Leitin skilaði einni niðurstöðu. Við smellum á bókina til þess að sjá hvar hún er aðgengileg.

4. skref

Bækur á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni eru merktar Lbs-Hbs. Ef við fáum fleiri en eina niðurstöðu er best að byrja á því að velja Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða. Við getum því smellt á Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða til þess að fá ítarlegri upplýsingar um bókina.

5. skref

Þegar við erum búin að smella á  Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða birtast ítarlegri upplýsingar um bókina. Það er til eitt eintak af bókinni á 4. hæð. Hillustaðsetningin er 819.1 Háv og eintakið er á sínum stað. Í þessu tilviki getur lánþegi komið á safnið og fundið eintakið í hillu.