Skip to Main Content
site header image

Leitir.is: Þrengja leitarniðurstöður

1. skref

Hægt er að þrengja leitarniðurstöður á marga vegu. Í þessu dæmi ætlum við að reyna að finna japanska þýðingu á Hávamálum. Við byrjum á því að slá inn leitarorð í leitargluggann og smellum á stækkunarglerið.

2. skref

Leitin skilaði 326 niðurstöðum. Við notum Þrengja niðurstöður vinstra megin á síðunni til þess að afmarka leitina betur. Fjöldi niðurstaðna fyrir hvern valmöguleika stendur síðan í sviga fyrir aftan hvern valmöguleika.

3. skref

Við byrjum á því að smella á Bækur og fáum þannig 109 niðurstöður.

4. skref

Næst förum við undir Tungumál og smellum á Sýna meira.

5. skref

Undir Tungumál veljum við Japanska og fáum þannig 1 niðurstöðu.

6. skref

Við smellum á bókina til þess að sjá hvar hún er aðgengileg.

7. skref

Bækur á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni eru merktar Lbs-Hbs. Ef við fáum fleiri en eina niðurstöðu er best að byrja á því að velja Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða. Við getum því smellt á Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða til þess að fá ítarlegri upplýsingar um bókina.

8. skref

Þegar við erum búin að smella á Lbs-Hbs Þjóðarbókhlaða birtast ítarlegri upplýsingar um bókina. Það er til eitt eintak af bókinni á 4. hæð. Hillustaðsetningin er 819.1 Háv og eintakið er á sínum stað. Í þessu tilviki getur lánþegi komið á safnið og fundið eintakið í hillu.